20.11.1984
Efri deild: 16. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

143. mál, álbræðsla við Straumsvík

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Varðandi aths. hv. síðasta ræðumanns til forseta um að hann hefði ekki vítt hæstv. ráðh. í orðræðu, þá hefur forseta þótt ástæða til að fara varlega í slíkar aðgerðir. Oft hefur hvarflað að forseta að gera mætti aths. við orðalag manna, en hefur þó látið kyrrt liggja eins og var gert að þessu sinni.