29.11.1984
Neðri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (963)

143. mál, álbræðsla við Straumsvík

Magdalena Margrét Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég vil gera grein fyrir atkvæði mínu. Þar sem ég tók sæti á Alþingi í gær hef ég ekki haft tíma til að kynna mér þennan samning nægilega vel til þess að taka efnislega afstöðu til hans og kýs því að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.