03.12.1984
Efri deild: 22. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (989)
99. mál, kirkjusóknir
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um kirkjusóknir, safnaðarfundi, sóknarnefndir, héraðsfundi o.fl. á þskj. 103 eins og það hefur verið afgreitt frá hv. Nd., sbr. þskj. 192. Frv. þetta var upphaflega samið af svokallaðri kirkjulaganefnd er skipuð var til þess að endurskoða kirkjulöggjöfina. Að tilhlutan kirkjuráðs var frv. lagt fyrir kirkjuþing á árinu 1982 er gerði á því smávægilegar breytingar. Veturinn 1982–83 var það síðan lagt fyrir Alþingi og fékk þá ekki umfjöllun og aftur fyrir síðasta þing þar sem því var þá vísað til nefndar og sent til umsagnar sóknarnefnda, en ekki vannst tími til þess að afgreiða málið. Það var síðan lagt fyrir hv. Nd. í upphafi þessa þings og hefur nú verið afgreitt þaðan með breytingum sem eru flestar smávægilegar að undantekinni einni sem ég mun víkja að síðar.
Núgildandi ákvæði um sóknir og sóknarnefndir er fyrst og fremst að finna í lögum nr. 36/1907, um skipan sóknarnefnda og héraðsfunda. Auk þess er að finna ákvæði um þetta efni í öðrum lögum, einkum lögum nr. 35/1970, um skipan prestakalla og prófastsdæma og um Kristnisjóð.
Í I. kafla frv. er vikið að umdæmaskiptingu innan þjóðkirkjunnar. Sóknin er grunneining í þeirri umdæmaskiptingu. Um skiptingu landsins í prófastsdæmi og prestaköll og hvaða sóknir tilheyra hverju prestakalli er ekki fjallað í þessu frv., enda er það gert í lögum nr. 35/1970, um skipan prestakalla, prófastsdæma og um Kristnisjóð.
Í II. kafla frv. er fjallað um kirkjusóknir og skipan þeirra, um sóknarmörk, skiptingu kirkjusókna, sameiningu þeirra og um það hvenær og hvernig sókn verði lögð niður. Hér er um fyllri ákvæði að ræða en nú eru í gildandi lögum.
Ákvæði 4.–6. gr. frv., um breytingu á sóknarmörkum, niðurlagningu sókna o.fl., eru að mestu efnislega samhljóða ákvæðum 11.–13. gr. laga nr. 35/1970. Þó er rétt að benda á að í gildandi lögum er tilskilið að kirkjumálaráðherra staðfesti breytingar er kunni að verða gerðar á mörkum sókna og sóknaskipan að undangenginni umfjöllun viðkomandi safnaða og héraðsfunda og að fengnum tillögum biskups. Í frv. er n einungis gert ráð fyrir afskiptum ráðh. af slíkum málum, ef tillögur ná eigi samþykki viðkomandi safnaða og héraðsfunda.
Í 3. gr. er kveðið á um að í kirkjusókn skuli að jafnaði eigi vera fleiri en 4000 sóknarmenn og eigi færri en 100. Hér er fyrst og fremst um viðmiðunarreglu að ræða. Í lögum nr. 35/1970, um skipan prestakalla og prófastsdæma og um Kristnisjóð, eru í gildi þær viðmiðunarreglur að í Reykjavíkurprófastsdæmi skuli jafnan vera svo margir prestar að sem næst 5000 manns komi á hvern að meðaltali, en í kaupstöðum utan Reykjavíkurprófastsdæmis er miðað við að 4000 manns komi á hvern prest.
Það er nýmæli að tilgreina lágmarksfjölda sóknarmanna. Í nokkrum sóknum eru færri en 100 sóknarmenn. Spyrja má hvort með þessu ákvæði sé verið að þvinga fram fækkun sókna. Svo er raunar ekki. Eins og fyrr greinir er hér um að ræða viðmiðunarreglur. Það er undir vilja sóknarmanna komið hvort þeir kjósa að leggja niður sókn og sameinast annarri og þarf slíka ákvörðun m.a. að leggja fyrir aðalsafnaðarfund. Víða kann að vera heppilegt að sameina tvær eða fleiri sóknir í eina þar sem landfræðilegar eða félagslegar ástæður mæla með því. Umrætt ákvæði ætti að ýta undir þessa þróun án þess að þvinga hana fram.
Í III. kafla er fjallað um sóknarmenn og rétt þeirra til kirkjulegrar þjónustu og að nokkru um stöðu þeirra og réttindi og skyldur innan sóknar og þar af leiðandi innan þjóðkirkjunnar. Hér er gert ráð fyrir að lögfesta þá meginreglu að skírn sé forsenda fyrir því að menn tilheyri þjóðkirkju.
Rétt er að vekja athygli á ákvæðum 9. gr. Þar er tilgreindur réttur sóknarmanna til guðsþjónustu. Í sóknum, þar sem sóknarmenn eru nú 600 hið fæsta, skal almenn guðsþjónusta haldin hvern helgan dag. Í sóknum, þar sem eru færri sóknarmenn, er guðsþjónusta bundin við annan hvern, fjórða hvern eða áttunda hvern helgan dag eftir nánari reglum þar um. Það kann að orka tvímælis hvort rétt sé að binda guðsþjónustuskylduna í lögum með þeim hætti sem hér er gert og vakti ég athygli á því við framsögu mína í hv. Nd. og vísaði því til hv. menntmn. Þetta ákvæði var hins vegar samþykkt óbreytt í hv. Nd.
IV. kafli fjallar um safnaðarfundi, m.a. verkefni þeirra, starfshætti, fundarboðun, ályktunarfærni o.fl. Ákvæði frv. um þetta efni eru ítarlegri en ákvæði gildandi laga.
Í V. kafla eru ákvæði um sóknarnefndir, skipun, störf og starfshætti. Samkvæmt gildandi lögum eru þrír sóknarnefndarmenn þar sem sóknarmenn eru færri en 1000 en annars fimm. Samkvæmt 14. gr. frv. er gert ráð fyrir að fjölga sóknarnefndarmönnum þannig að þeir verði þrír þar sem sóknarmenn eru færri en 300. en ella fimm, þó svo að þegar sóknarmenn eru 1000 hið fæsta mega sóknarnefndarmenn vera sjö, og níu ef sóknarmenn eru fleiri en 4000.
Frv. gerir ráð fyrir því að kjörtímabil sóknarnefnda verði fjögur ár í stað sex ára samkvæmt gildandi lögum. Í 22. gr. frv. var lagt til að safnaðarfulltrúar yrðu kosnir af sóknarnefndum í stað þess að þeir eru nú kosnir á safnaðarfundi. Var þar fylgt ályktun kirkjuþings frá 1978 um þetta efni en nauðsynlegt þótti að safnaðarfulltrúar væru í sem nánustum tengslum við sóknarnefnd á hverjum stað. Þessu ákvæði var hins vegar breytt í hv. Nd. í það horf sem það er samkvæmt gildandi lögum, að safnaðarfulltrúi sé kjörinn af aðalsafnaðarfundi. Finnst mér það orka nokkuð tvímælis því ég held að æskilegt sé að sóknarnefndir séu tengdar þannig að það sé fulltrúi frá þeim sem situr héraðsfundi. En vitanlega er hægt að koma því þannig fyrir með kosningu enda þótt það sé ekki bundið í lögum.
Í 24. gr. er það nýmæli að gert er ráð fyrir að biskup setji sóknarnefndum erindisbréf.
Í VI. kafla er ákvæði um starfsmenn sókna. Er þar um nokkurt nýmæli að ræða sem ekki er ástæða til að fjölyrða frekar um.
VIl. kafli fjallar um héraðsfundi og héraðsnefndir. Í 36. gr. er kveðið á um að í hverju prófastsdæmi skuli starfa þriggja manna héraðsnefnd sem er framkvæmdanefnd héraðsfunda. Ætti þetta að efla kirkjulega starfsemi innan hvers prófastsdæmis og horfa til bóta.
Ég hef hér, hæstv. forseti, rakið helstu atriði frv. þar sem um nýmæli er að ræða. Legg ég til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.