11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 120 frá 31. desember 1984 um verðjöfnunargjald af raforku eins og það er kynnt á þskj. 216. Með frv. þessu er lagt til að innheimta verðjöfnunargjalds af raforku verði framlengd út árið 1986. Jafnframt er lagt til að gjaldið, sem var lækkað úr 19% í 16% með lögum nr. 120/1984, verði áfram 16% og verði tekjum af gjaldinu skipt á sama hátt og verið hefur á milli Rafmagnsveitna ríkisins sem fá 80% og Orkubús Vestfjarða sem fær 20%. Gert er ráð fyrir að þessi tilhögun gildi óbreytt í eitt ár til viðbótar og að lögin falli sjálfkrafa úr gildi 31. desember 1986.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. iðnn. og 2. umr.