11.12.1985
Neðri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)

190. mál, gjaldþrotalög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á gjaldþrotalögum nr. 6 5. maí 1978. Frv. felur í sér breytingu á nokkrum atriðum laganna og miðar að því að ráða bót á atriðum þar sem lögin taka nú ekki nægilegt tillit til aðstæðna við meðferð umfangsmikilla mála. Frv. er flutt samkvæmt ábendingum þeirra dómara í Reykjavík sem mesta reynslu hafa í meðferð þrotabúa.

Ákvæði frv. varða heimild fyrir skiptaráðanda til að lengja kröfulýsingarfrest í einstökum málum úr tveimur mánuðum, svo sem almennt er, í allt að sex mánuði. Er þetta gert einkum með tilliti til erlendra kröfuhafa en eingöngu þá í undantekningartilfellum. Þá felst í frv. rýmri heimild fyrir skiptaráðanda til að taka skýrslur og afla gagna sem nauðsynlegt er að fá til að kanna eignir þrotabús og til að meta hvort ástæða er til að höfða riftunarmál. Samkvæmt gildandi lögum hefur þurft að koma til atbeina rannsóknarlögreglu þótt ekki hafi verið um að ræða verulegan grun um refsivert hátterni. Þykir rétt að skiptaráðanda verði veitt rýmri heimild að þessu leyti.

Loks er í frv. gert ráð fyrir því að við dómaraembætti þar sem starfandi eru fleiri en einn dómari megi fela tveimur eða fleiri dómurum að fara sameiginlega með skipti þrotabús samkvæmt ákvörðun forstöðumanns.

Ég get þess sérstaklega vegna hins umfangsmikla gjaldþrotamáls Hafskips hf. að ég mun sem dómsmrh. beita mér fyrir því að embætti borgarfógeta verði gert kleift að vinna að þessu máli af sem mestum krafti. Viðræður hafa farið fram milli borgarfógetaembættisins og ráðuneytisins um ýmsar ráðstafanir til að auðvelda og flýta fyrir rannsókn þess máls. Hér er um mjög viðamikið mál að ræða sem krefst bættrar aðstöðu borgarfógetaembættisins vegna umfangs málsins. Ráða þarf viðbótarmannafla tímabundið. Einnig þarf aukið húsrými. Athugaðir hafa verið möguleikar á að tölvutaka ýmsar upplýsingar til þess að auðvelda rannsókn og meðferð málsins. Allt þetta þarfnast aukinna fjárveitinga. Ég hef rætt þetta mál við fjmrh. og hefur hann lýst fullum stuðningi við þessa málaleitan.

Herra forseti. Frv. þessu er ætlað að ráða bót á atriðum er varða meðferð þrotabúa. Það er ekki mikið að vöxtum og ég vænti þess að það fái góðar undirtektir á þinginu og hraða afgreiðslu.

Ég legg til að frv. verði að þessari umræðu lokinni vísað til hv. allshn. og 2. umr.