23.10.1985
Neðri deild: 6. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

61. mál, kosningar til Alþingis

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Þessi atriði, sem hv. 10. landsk. þm. minntist á, hafa verið til umræðu við umfjöllun Alþingis um þessi mál fyrr, bæði í sambandi við breytinguna sem gerð var 1984 og reyndar áður, en erfitt hefur reynst að finna einfaldar lausnir sem allir eru ánægðir með. Hins vegar vildi ég leggja áherslu á að hv. þm. kæmi þessum athugasemdum sínum og hugmyndum á framfæri við þá nefnd sem kosin verður hér á Alþingi til að fjalla um málið.