14.12.1985
Sameinað þing: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)

1. mál, fjárlög 1986

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Í fyrsta lagi vildi ég staðfesta þá fullyrðingu að við höfum alltaf greitt atkvæði um þennan lið við 3. umr. hingað til og í öðru lagi ætla ég að minna á að við erum að starfa innan ákveðins samkomulags um afgreiðslu mála og miðuðum við að að reyna að hefja þingdeildafundi fyrir tveim mínútum. Það greiðir ekki fyrir ef stjórnarþm. halda ekki betur á þessu samkomulagi en vera með alls kyns uppákomur í atkvæðagreiðslum.