14.12.1985
Efri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)
194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Að gefnu tilefni og vegna orða hv. 3. þm. Norðurl. v. vill forseti geta þess að það er stefnt að því að taka einnig fyrir 9. mál á dagskrá, sem hann nefndi sérstaklega, en það fjallar í raun og veru um sama efni. En að sjálfsögðu fer þetta eftir því hvað hv. þingdeildarmönnum tekst að komast áfram, hvað ræður verða langar, því að það varð samkomulag um að reyna að ljúka þessum fundi ekki miklu seinna en kl. 1. Þetta verður að vera samkomulag milli hv. þingdeildarmanna.