14.12.1985
Neðri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)

184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyting á lögum nr. 120 frá 31. des. 1984, um verðjöfnunargjald af raforkusölu. 1. gr. frv. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Í stað orðanna „31. des. 1985“ í 13. gr. laganna komi orðin: 31. desember 1986.“

Í athugasemdum segir að með frv. þessu sé lagt til að innheimta verðjöfnunargjalds af raforkusölu verði framlengd út árið 1986. Jafnframt er lagt til að gjaldið, sem var lækkað úr 19% í 16% með lögum nr. 120/1984, verði áfram 16% og verði tekjum af gjaldinu skipt á sama hátt og verið hefur milli Rafmagnsveitna ríkisins, sem fá 80%, og Orkubús Vestfjarða sem fær 20%.

Gert er ráð fyrir að þessi tilhögun gildi óbreytt eitt ár til viðbótar og að lögin falli sjálfkrafa úr gildi 31. des. 1986.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. iðnn. þessarar deildar.