16.12.1985
Neðri deild: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

145. mál, stjórn fiskveiða

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Efnislega er ég andvígur því kvótafyrirkomulagi sem þetta frv. gerir ráð fyrir, en með hliðsjón af því að hagsmunaaðilar hafa yfirgnæfandi lýst sig samþykka þeirri stefnu sem fram kemur í frv. mun ég ekki greiða atkvæði.