16.12.1985
Neðri deild: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)
186. mál, almannatryggingar
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það getur verið að þetta sé hið ágætasta mál og ég skal ekki mæla gegn því efnislega, en ákaflega þykir mér einkennileg sú setning sem á að vera 1. gr. og tillaga er gerð um í 1. gr.: „Hvort foreldri sem er getur að ósk móður dvalist hjá barni sínu þann mánuð.“ Út úr þessu mætti lesa að ef móðirin óski eftir því sé augljóst að annaðhvort geti móðirin sjálf eða þá geti faðirinn, hvernig svo sem á stendur, dvalist hjá barni sínu. Ég get ekki séð að það geti ekki eitthvað annað komið í veg fyrir að annað hvort foreldrið geti dvalist hjá barni sínu.
Ég legg til að þetta orðalag verði skoðað nánar í þeirri nefnd sem fær frv. þetta til umfjöllunar þannig að þetta verði skýrara og stangist ekki á við eðlilegan skilning sem maður getur í þetta lagt samkvæmt íslensku máli.