16.12.1985
Efri deild: 33. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

145. mál, stjórn fiskveiða

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Enn eru fimm á mælendaskrá og nú er kominn nýr dagur. Það er rétt að vekja athygli á því að nauðsynlegt er að koma þessu frv. til nefndar nú. Ég efast ekki um að okkur takist það á nokkuð kristilegum tíma miðað við aðstæður þar sem menn eru hér almennt mjög gagnorðir og stuttorðir.