17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

Um þingsköp

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Vegna spurningar hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur vil ég upplýsa, sem ég veit reyndar að henni hefur verið tjáð, að sá starfsmaður sem hefur haft með bifreiðamál ríkisstj. að gera hefur verið veikur um nokkurn tíma. Hann er kominn aftur til starfa og ég hef lagt á það mikla áherslu að svarið verði komið til hv. þm. fyrir jólahlé.