17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1775 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)

Um þingsköp

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Það er rétt, sem fram kom hjá hæstv. viðskrh., að ég spurði hann að því í gær hvort hann mundi svara umræddri fsp í dag og hann tjáði mér að hann hefði ekki fengið fsp. Ég leitaði þá til skjalavarðar um hvort viðskrn. hefði ekki borist þessi fsp. Það var mér tjáð og sýnt bréf þess efnis að 10. des. eða fyrir viku hefði viðskrn. verið send umrædd fsp. Samkvæmt því hefur ráðuneytið haft eina viku til að svara fsp.