18.12.1985
Efri deild: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1825 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)

197. mál, barnabótaauki

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um sérstakan barnabótaauka. Það er með þetta mál eins og önnur sem hafa verið hér til umræðu í deildinni á þessum fundi. Hér er um framlengingarmál að ræða. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt og hef ég ekki fleiri orð þar um.