18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. 2. gr. fjallar ekki um sölu Kröfluvirkjunar. Hún fjallar um afhendingu á eignum ríkisins, á jarðhita sem Landsvirkjun e.t.v. dettur í hug að virkja eftir árið 2020. Ég tel það fullmikla fyrirhyggju að ganga frá þessu máli hér og nú meðan svo óljóst er um hvernig að því verður staðið. Ég segi því nei.