18.12.1985
Neðri deild: 34. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég held nú vegna þess sem upp er komið að eðlilegt sé að nefndin kanni þetta á milli umræðna. Það á ekki að þurfa að taka mikinn tíma. Heppilegt væri að hægt væri að komast að samkomulagi um það að þessar brtt. verði teknar aftur til 3. umr. og við reynum að bær.a úr þessu milli umræðna. En ég held þó að hægt hefði verið að ljúka þessu. Þessar tillögur á þskj. 290 eru þá teknar aftur til 3. umr.