24.10.1985
Neðri deild: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (155)

70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Síðast þegar ég stóð að sambærilegri aðgerð, eins og hér er gerð, var það í félagi við Alþb. Eini munurinn þá og nú er að þá óskaði Alþb. eftir því við Alþfl. að hann flytti fyrir sig frv. Á þau tilmæli féllumst við að sjálfsögðu, en samstaða var um málið milli okkar og þeirra og eru báðir flokkarnir við alþýðu kenndir. Ég segi já.

Frv. afgr. til Ed.