24.10.1985
Neðri deild: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (157)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil mótmæla þeim málflutningi að þm., hvort sem þeir eru kvenkyns eða karlkyns, láti kúga sig til eins eða neins og ég vil mótmæla þeim málflutningi að forseti Íslands láti kúga sig til eins eða neins. Ég vil minna hv. 10. landsk. þm. á að hún er ekki stödd í Sovétríkjunum.