18.12.1985
Efri deild: 38. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Enda þótt það hafi orðið mér veruleg vonbrigði að till. okkar um sérstaka nefnd þm. til að fylgjast með rannsókn þessa máls skyldi ekki ná fram að ganga hér í deildinni, þá tel ég engu að síður eftir atvikum rétt, eins og málin horfa nú við, að styðja framgang þessa máls og segi því já.