19.12.1985
Efri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1883 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)

182. mál, málefni aldraðra

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að það verði samþykkt óbreytt frá afgreiðslu þess í Nd. Það varð alger samstaða um afgreiðslu málsins. Það voru gerðar breytingar á frv. í Nd. Það hefur verið gerð grein fyrir þeim breytingum. Þær eru þess eðlis að tölur eru leiðréttar til samræmis við tilgang frv.