19.12.1985
Neðri deild: 40. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)

2. mál, lánsfjárlög 1986

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Jafnvel þótt menn væru allir af vilja gerðir að taka undir forsendur, þ.e. andmæli hv. 3. þm. Reykv. í þessu máli er erfitt að verja það fyrir samvisku sinni að greiða atkvæði gegn hækkunartillögu upp á 165 millj. Ég segi því í þessu tilviki já.