19.12.1985
Neðri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)
198. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 384 við frv. til laga um breytingu á lögum nr. 75 frá 14. september 1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Þetta er álit meiri hluta fjh.- og viðskn. Nefndin hefur rætt þetta frv. og leggur meiri hlutinn til að það verði samþykkt. Minni hluti mun skila sérliti. Undir þetta skrifa Páll Pétursson, Halldór Blöndal, Ólafur G. Einarsson og Friðrik Sophusson og með fyrirvara Svavar Gestsson og Guðmundur Einarsson. Hér er um að ræða frv. til laga um vexti og frádrátt fyrir vaxtagjöld.