19.12.1985
Neðri deild: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (1693)
194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.
Frsm. 2. minni hl. (Guðmundur Einarsson):
Herra forseti. Í sambandi við það sem hefur verið vísað til útvarpsumræðna þá vék ég að þessu máli í báðum ræðum mínum þar. Ég átti þess kost að tala þar í tveimur umferðum. Ég sagði - ég hef nú því miður ekki þessar ræður hérna fyrir framan mig - í fyrri umferð efnislega það sem ég sagði hér áðan, sem sé að þessi tengsl valdþáttanna, sem við höfum gert að umræðuefni hér í kvöld, gerðu þessari rannsókn erfiðara fyrir en ég teldi samt - enda var ég meðal flm. frv. um rannsóknarnefndir þingsins - að við hefðum engan annan kost en að láta þingið rannsaka þetta mál, en að þessi tengsl legðu okkur þær kvaðir á herðar að við yrðum að gæta þess sérstaklega að tengslin skemmdu ekki rannsóknina. Og síðan í seinni ræðunni þar sem ég tala um forsendur þá er ég að vísa til þess - eins og ég segi hef ég þessa ræðu ekki, hvorki úr þingtíðindum né úr mínum gögnum vegna þess að ég flutti hana blaðalaust - þegar ég er að tala um forsendur þar þá meina ég það nákvæmlega, hv. þm., að þetta er forsendan fyrir því að þetta eftirlitskerfi gangi áfallalaust. Þetta er forsendan fyrir því að þetta eftirlitskerfi gangi áfallalaust og án vandræða.
Ég geri mér fullkomlega grein fyrir þeim erfiðleikum sem eru á því að láta svona þingnefndarrannsókn fara fram við þessar aðstæður sem eru núna. En eins og ég sagði í ræðu minni í útvarpsumræðunum, og eins og ég hef sagt hér í kvöld, þá tel ég engu að síður að við höfum ekki og eigum ekki annan kost betri. Og forsendan, ef ég hef valið það orð þá er mér það í hug að það er auðvitað forsendan fyrir því að slíkar rannsóknir geti farið fram áfallalaust og án þeirra erfiðleika sem þau tengsl sem nú eru augljóslega valda okkur. Þá er ég ekki síður að hugsa til framtíðar, vegna þess að það virðist vera fyrir því talsverður áhugi innan þingsins að þingið ræki þetta eftirlits- og rannsóknarhlutverk sitt betur en það hefur gert.
Herra forseti. Síðan varðandi það hverjir hefðu notað þessi rök. Ég er ekkert að dylja það að ég hef haft af því áhyggjur og hef af því áhyggjur í þessu máli, að þessi tengsl milli valdþáttanna myndu gera eða hefðu gert svona rannsókn af hálfu þingsins erfiða. Ég hef ekkert leynt þeirri niðurstöðu minni. Hins vegar held ég að ég muni það rétt að í ræðum talsmanna Sjálfstfl í þessum sömu útvarpsumræðum var ýjað að þessum vandkvæðum þó að ræðumenn tækju það ekki eins skýrt fram og ég gerði.
Herra forseti. Ég ítreka þá skoðun mína að sú leið sem lögð er til með þessu frv., þ.e. að kjósa eða fá nefnd frá Hæstarétti, sé ekki viðunandi. Ég tel að þingið hafi engan annan kost en að taka á þessu sjálft þó að aðstæður gætu og hefðu átt að vera betri.