21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2093 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)

1. mál, fjárlög 1986

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Till. okkar Alþýðuflokksmanna í málefnum Lánasjóðs ísl. námsmanna fjallar um að fella niður lántökur til sjóðsins en taka upp ríkisframlög í hans stað því að við teljum óeðlilegt að afla fjár til slíkrar starfsemi með lántökum erlendis eða innanlands. Þessi till. hv. þm. Ragnars Arnalds getur fyllilega samrýmst þeim till. okkar og ég segi því já.