21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)

1. mál, fjárlög 1986

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það er tímanna tákn að þessi liður skuli borinn upp í ríkisstj. þar sem Framsfl. á ekki einasta forsrh. heldur einnig landbrh. Í mínum huga getur þessi aðgerð einungis þýtt annað af tvennu: að þessi þjónusta leggst af eða úr henni verður verulega dregið eða að vextir á fjárfestingarlánum til bænda hækka stórlega. Ég segi því nei.