21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

1. mál, fjárlög 1986

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þar sem mér hefur verið tjáð að þessi kaup hafi átt sér stað á árinu 1985 og séu að fullu frágengin fæ ég ekki séð að það þurfi heimild árið 1986 til að kaupa sömu eign. Ég greiði því ekki atkvæði.