21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (1795)

1. mál, fjárlög 1986

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Með vísan til stefnu ríkisstj. að draga í land með bæði erlendar og innlendar lántökur og þess einnig að hér er verið að kaupa gamalt sérbyggt verksmiðjuhús, sem þarf mikillar viðgerðar við áður en hægt er að brúka það til þess sem það er keypt fyrir, segi ég nei.