16.10.1985
Sameinað þing: 3. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (18)
Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Með bréfi dags. 8. okt. s.l. tilkynnti
formaður þingflokks sjálfstæðismanna mér að þingflokkurinn hefði ákveðið á fundi sínum 7. okt. að
formaður Sjálfstfl., Þorsteinn Pálsson, tæki sæti í ríkisstjórninni og jafnframt fallist síðan á tillögu
formanns Sjálfstfl. um skipan ráðuneyta Sjálfstfl. í ríkisstjórninni.
Í samræmi við þetta bréf gerði ég í morgun á ríkisráðsfundi tillögu til forseta Íslands um skipan í
ráðherraembætti. Vil ég, með leyfi forseta, lesa tillögu þá:
„Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur í bréfi til mín, dagsettu 8. þessa mánaðar, tilkynnt mér
samþykkt þingflokksins um breytta skipan á ráðuneytum Sjálfstfl. í ríkisstjórninni. Skv. því leyfi ég
mér allra virðingarfyllst að leggja til við yður, forseti Íslands, þær breytingar á skipan ráðherraeinbætta
sem nú skal greina:
Albert Guðmundsson fjmrh., Matthías Bjarnason heilbr.- og trmrh., Ragnhildur Helgadóttir
menntmrh. og Sverrir Hermannsson iðnrh. hafa látið af þessum ráðherraembættum. Leyfi ég mér allra
virðingarfyllst að leggja til að Þorsteinn Pálsson alþin. verði skipaður fjmrh. í stað Alberts
Guðmundssonar, að Albert Guðmundssyni verði falið að fara með iðnrn. í stað Sverris Hermannssonar,
að Matthíasi Bjarnasyni samgrh. verði falið að fara með viðskrn. í stað Matthíasar Á. Mathiesen, sem
beðist hefur lausnar frá því embætti, að Ragnhildi Helgadóttur verði falið að fara með heilbr.og trmrn. í
stað Matthíasar Bjarnasonar, að Sverri Hermannssyni verði falið að fara með menntmrn. í stað
Ragnhildar Helgadóttur.
Leyfi ég mér allra virðingarfyllst að leggja til við yður að þér, forseti Íslands, fallist á
framangreinda skipan ráðherraembætta. Jafnframt leyfi ég mér allra virðingarfyllst að leggja fyrir yður,
forseti Íslands, bréf um lausn Matthíasar Á. Mathiesen frá ráðherraembætti og skipunarbréf handa
Þorsteini Pálssyni til að vera ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Forsrn. 16. okt. 1985.
Allra virðingarfyllst.
Steingrímur Hermannsson.
Guðmundur Benediktsson.“
Þegar forseti hafði fallist á tillögu þessa gerði ég jafnframt tillögu um skipan í ráðherraembætti
sem einnig var undirskrifuð á þessum ríkisráðsfundi. Vil ég einnig, með leyfi forseta, lesa það bréf.
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsrh. og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga nr. 73/1969 um
Stjórnarráð Íslands og reglugerð skv. þeim frá 31. des. 1969 er störfum þannig skipt með ráðherrunum:
Steingrímur Hermannsson fer með forsætisráðuneytið.
Geir Hallgrímsson fer með utanríkisráðuneytið.
Albert Guðmundsson fer með iðnaðarráðuneytið.
Alexander Stefánsson fer með félagsmálaráðuneytið.
Halldór Ásgrímsson fer með sjávarútvegsráðuneytið.
Jón Helgason fer með landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðuneytin.
Matthías Bjarnason fer með samgönguráðuneytið og viðskiptaráðuneytið.
Ragnhildur Helgadóttir fer með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Sverrir Hermannsson fer með menntamálaráðuneytið.
Þorsteinn Pálsson fer með fjármálaráðuneytið og Hagstofu Íslands.
Með úrskurði þessum falla úr gildi eldri ákvæði um skipting starfa ráðherra.
Bessastöðum, 16. október 1985.
Vigdís Finnbogadóttir.
Steingrímur Hermannsson.
Forsetaúrskurður um skipun og skipting starfa ráðherra.“
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa breytingu. Með henni er fyrst og fremst það
gert að formaður Sjálfstfl., Þorsteinn Pálsson, tekur sæti í ríkisstjórninni og það er vafalaust til þess að
styrkja það samstarf sem er með flokkunum um stjórn landsins.