21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

Kosning í bankaráð Búnaðarbanka Íslands

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Vegna ummæla hv. þm. Guðmundar Einarssonar áðan vil ég rétt einu sinni taka það fram að Alþfl. hefur ekki í fjöldamörg ár kosið þm. í bankaráð. Þá starfsreglu geta því aðrir stjórnmálaflokkar tekið upp að hans fordæmi án nokkurrar lagabreytingar.