21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2104 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)

Kosning í bankaráð Búnaðarbanka Íslands

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég vil aðeins benda á það, vegna þess sem kom fram hjá hv. 5. þm. Reykv. varðandi kosningu Alþfl. í bankaráð, að hvort sem flokkar kjósa alþm. eða ekki í bankaráð eða í trúnaðarstöður eru þeir á sama hátt pólitískt kjörnir menn og gegna nákvæmlega sama hlutverki hvort sem þeirra aðalatvinna er að vera alþm. eða eitthvað annað í þjóðfélaginu.