21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2110 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)

Kosning í bankaráð Útvegsbanka Íslands

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram að það er grundvallarregla að það eru ekki leyfðar umræður við atkvæðagreiðslur. Það er aðeins í undantekningartilfellum ef menn hafa eitthvað að athuga við framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.