21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2112 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)

Þingfrestun

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég vil líka þakka honum fyrir trausta og örugga forustu um þingstörfin nú sem endranær, eins og glöggt hefur komið í ljós í dag. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar hátíðar, farsæls komandi árs og ég leyfi mér að vænta þess að við megum öll hittast heil að loknu þessu hléi á þingstörfum. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]