21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2112 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég þakka hv. 3. þm. Norðurl. v. fyrir hlý orð í minn garð og fjölskyldu minnar. Ég þakka öllum hv. þm. fyrir að taka undir orð hv. 3. þm. Norðurl. v.

Ég ítreka óskir mínar um gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár öllum alþm. og starfsliði Alþingis til handa.