27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar þm. Jafnframt vil ég færa hæstv. forsrh., þm. öllum og starfsliði Alþingis óskir um gott og farsælt ár og ég þakka fyrir ánægjulega samvinnu á liðnu ári. Ég býð alla velkomna til starfa á nýju ári.

Samkvæmt forsetabréfi, sem hæstv. forsrh. hefur hér flutt, er þingfundur settur í sameinuðu Alþingi.