04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (1956)
Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Hér virðist vera mikið alvörumál á ferðinni þegar það upplýsist að Landhelgisgæslan og dómsmrn. eru nánast búin að leigja þann öryggisventil sem er í gæsluflugi í kringum landið og hjálpartæki, það eina sem til er, til þessara hluta. Ég skora á hæstv. ráðh. að breyta þessari ákvörðun. Það er augljóst að ekkert kemur í staðinn fyrir þetta tæki. Þegar um slíkan öryggisventil er að ræða geta menn ekki kallað hann úr leiguflugi hvenær sem er. Ég held að það sé alveg augljóst að Alþingi getur ekki látið þetta mál fara fram hjá sér án þess að gera allítarlegar ályktanir um að slíkir hlutir verði ekki gerðir.
Það er alveg augljóst að verði slys sem þarf að sinna og hefur verið sinnt af Landhelgisgæslunni verður það ekki gert með öðrum hætti en með þessari vél. Flugmálastjórnarvélin sinnir því ekki. Þyrlur gera það ekki. Hér er verið að taka úr höndum gæslunnar þann öryggisventil sem verður að vera fyrir hendi ef ekki á illa að fara í verstu tilvikum. Ég skora eindregið á stjórnvöld sem hér ráða ferðinni og forstjóra gæslunnar ekki síst að koma í veg fyrir að þetta verði gert með þessum hætti. Hér er allt of mikið alvörumál á ferðinni til þess að Alþingi geti látið það orðalaust fara í gegn að slíkir hlutir eigi sér stað.