04.02.1986
Sameinað þing: 41. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)
Leiga á flugvél Landhelgisgæslunnar
Helgi Seljan:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég hlýt að taka undir með hv. málshefjanda, Skúla Alexanderssyni, í þessu máli og ítreka að slíkt öryggistæki verður að vera til hjá réttum aðilum. Sjómenn sem aðrir ætlast til þess að svo sé. Fólkið úti á landsbyggðinni ætlast til að svo sé. Fyrir þetta fólk er það í raun og veru eins og hver önnur hrollvekja að upplýsa að þetta öryggistæki eigi að vera í bindandi flugi hjá fyrirtæki hér á landi.
Eitt kemur mér á óvart í svörum hæstv. ráðh. Það er afstaða Landhelgisgæslunnar sjálfrar, sem reyndar hefur verið komið hér inn á einnig, hversu lítilþæg, liggur mér við að segja, hún virðist vera í þessum efnum. En um leið kemur einnig fram hjá hæstv. ráðh., beint í svörum hans, ófögur lýsing á afgreiðslu Alþingis og þar með þess meiri hluta sem skipar Alþingi nú og þeirrar ríkisstj. sem hæstv. ráðh. er aðili að, ófögur lýsing á því hvernig farið er með Landhelgisgæsluna á fjárlögum, að henni skuli skorinn svo þröngur stakkur að til þessara ráða verði að grípa svo að þar megi eitthvað ganga.
Annars get ég í lokin tekið undir með hv. 3. þm. Vestf. Ég held að hann hafi sagt allt það sem hér þurfti að segja. Og það sem meira er: Við skulum minnug þess að hann mælir þar nokkuð af eigin raun.