10.02.1986
Sameinað þing: 43. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2413 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. febr. 1986.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna anna 1. og 2. varamanns taki 3. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík, Guðrún J. Halldórsdóttir skólastjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed."

Ég vil leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréf þetta til meðferðar. Á meðan verður fundinum frestað í fimm mínútur. - [Fundarhlé.]