29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 28. okt. 1985:

Haraldur Ólafsson, 9. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Björn Líndal deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed."

Björn Líndal hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann á ný velkominn til starfa.