29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (213)
42. mál, löggæsla á höfuðborgarsvæðinu
Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir þær upplýsingar sem komu fram í svari hans. Ég fagna því vissulega að það er lögð áhersla á fyrirbyggjandi starf. Vissulega væri það gott ef hægt væri að bæta þjónustuna án aukins kostnaðar þó það sé kannske vafasamt að slíkt gæti gerst.
Ég vildi leyfa mér, herra forseti, ef tími vinnst til, að lesa hér a.m.k. kafla úr bréfum frá viðkomandi sveitarstjórnum sem hafa ítrekað ályktað um þessi mál, en það gerðu núna annars vegar Mosfellshreppur s.l. vor og nú s.l. haust Garðabær. Í bréfi frá sveitarstjóra Mosfellshrepps segir m.a., með leyfi forseta:
„Að undanförnu hefur æ meir komið í ljós sá mikli skortur sem er á löggæslu í Mosfellssveit. Ýmis tilvik hafa komið upp sem leitt hafa af sér skemmdir á eignum og mannvirkjum og má rekja þær til slælegrar löggæslu í byggðarlaginu. Má þar m.a. nefna að aðfaranótt 19. maí s.l. voru unnin mikil skemmdarverk á verslunarhúsinu Þverholti. Nokkurn tíma hefur tekið fyrir þá sem þessi spjöll unnu að fremja þau og ljóst að slíkt hefði ekki hent ef virk löggæsla væri hér til staðar. Sundlaugin að Varmá hefur að undanförnu verið vinsæll áningar- og viðkomustaður unglinga að nóttu til, og þeim heimsóknum hafa alla jafna fylgt skemmdarverk og sóðaskapur ýmiss konar. innbrot og þjófnaðir hafa færst í vöxt og umgengni um strætisvagnaskýli o.fl. ber þess glöggt vitni að þeir sem stunda skemmdarverkastarfsemi á kvöldum og nóttum telja sig óhulta við iðju sína og verk þeirra bera með sér að svo er.“
Þetta er kafli úr bréfi frá sveitarstjóra Mosfellshrepps. Síðan leyfi ég mér að lesa kafla úr bréfi frá bæjarstjóranum í Garðabæ, en þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Vegna manneklu og víðfeðmis löggæsluumdæmis Hafnarfjarðar hefur lögreglan þar nær einungis virkað sem björgunarsveit þegar í óefni er komið, en ekkert getað sinnt eiginlegri löggæslu. Mikill munur er á hve lögreglu í Reykjavík hefur tekist að sinna þessu hlutverki þó efalaust megi bæta þar úr.“
Til glöggvunar og fróðleiks má benda á að einn lögreglumaður er á hverja 370 íbúa í Reykjavík. Einn lögreglumaður er á hverja 625 íbúa í Kópavogi, en einn lögreglumaður er á hverja 1100 íbúa í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar sem er það stærsta af þessum þremur. Ef mál þetta væri skoðað af sanngirni má telja að ef einn lögreglumaður er nóg á 370 íbúa í Reykjavík þurfi einn og hálfan til tvo lögreglumenn til að sinna sama fjölda í lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar, meðan þaðan þarf að sinna Bessastaðahreppi, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellssveit, Kjalarnes- og Kjósarhreppum auk Hafnarfjarðar. Herra forseti. Ég læt hér staðar numið, en þakka á ný hæstv. dómsmrh. fyrir svör hans og einnig það að hann hafi í hyggju að boða sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu til fundar um þessi mál. Ég vænti þess að úrbætur verði innan skamms í löggæslumálum á höfuðborgarsvæðinu.