29.10.1985
Sameinað þing: 8. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

47. mál, kynlífsfræðsla í skólum

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég hef ekki ástæðu til að bera brigður á orð hv. fyrirspyrjanda. Sé þetta svo, sem ég mun kynna mér og kanna, að algjört skipulagsleysi ríki í þessari fræðslu, og rétt sé eftir skólastjórum haft að svo sé þetta, þá mun ég gera tilraun til að taka í þá tauma.