20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

135. mál, jöfnun orkukostnaðar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég var því miður fjarverandi þegar hv. síðasti ræðumaður hóf mál sitt, en hann endurtók spurninguna og ég skil það vonandi rétt að hér er hann að tala um nefnd þá sem hefur verið að störfum undir forustu Júlíusar Sólness. Þessi nefnd hefur starfað vel og starfað lengi, það er rétt, en fyrir nokkrum dögum skilaði nefndin áliti. Það álit er í skoðun í ráðuneytinu og ég hef beðið Júlíus Sólnes og nefndina að gera drög að frv. Ég vona að það líði ekki margir dagar þangað til ég get kynnt þetta álit hér.