20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2678 í B-deild Alþingistíðinda. (2280)

135. mál, jöfnun orkukostnaðar

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. svör hans. Það eru vissulega góð tíðindi að þessi nefnd, sem lengi hefur verið að störfum, hefur skilað áliti og að von er á frv. í framhaldi af því. En mig langar að inna hæstv. ráðh. eftir því um hvaða efni slíkt frv. muni fjalla, hvort þar verði tekið á því máli sem þáltill. fjallar um, lækkun og jöfnun orkukostnaðar meðal landsmanna og aðgerðir til að draga úr þessum mikla mismun. Það væri mjög forvitnilegt fyrir okkur þm. að fá einhver svör um það hvert verði efni þess frv. sem hæstv. ráðh. hér boðar.