20.02.1986
Sameinað þing: 50. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2678 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

135. mál, jöfnun orkukostnaðar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég er nú ekki með alla skýrsluna í höfðinu, en frv. fjallar um þó nokkrar breytingar, m.a. niðurfellingu á verðjöfnunargjaldi og ákveðna gjaldtöku eða skatt í staðinn. En mér er ljúft að láta ljósrita þessa skýrslu, hún er ekkert leyndarmál1 ráðuneytinu, og afhenda hv. þm. til athugunar. Ég held að ég gæti gefið honum bestar upplýsingar á þann hátt frekar en rifja upp skýrsluna eftir minni og eftir einn yfirlestur, má segja, á þessu stigi málsins.