25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2750 í B-deild Alþingistíðinda. (2343)

255. mál, kostnaður af starfsemi Krabbameinsfélags Íslands

Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Þessi ábending hv. 10. landsk. þm. er út af fyrir sig eðlileg þegar rætt er um þessa hluti, en hún snertir hins vegar beint næstu fsp. á eftir. Þess vegna var það sem ég ræddi ekki þennan hluta málsins. Ég vil að þessi skýring liggi fyrir.