25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2763 í B-deild Alþingistíðinda. (2363)

276. mál, nýting lánsfjár úr Iðnlánasjóði

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Eins og fram kom í svari mínu gerir sjóðsstjórnin ráð fyrir að það séu 1-2% af heildarútlánum sjóðsins sem gætu hugsanlega verið bundin í öðru húsnæði en iðnaðarhúsnæði í dag. Ég vil því leyfa mér að, ekki mótmæla, heldur leiðrétta hv. fyrirspyrjanda þegar hún segir að stjórn sjóðsins hafi ekki hugmynd um hve stór hluti lána sé bundinn í öðru en iðnaðarhúsnæði. Ég sem ráðherra hef ekki aðrar upplýsingar um störf stjórnar Iðnlánasjóðs en að hún vinni störf sín af mikilli samviskusemi og hef ekki ástæðu til þess að gera athugasemdir við hennar störf.