27.02.1986
Sameinað þing: 53. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2839 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)

Kjarasamningar

Forseti (Helgi Seljan):

Nú hafa allir aðilar fengið að tjá sig í þessum umræðum. Ég tel hins vegar rétt í lokin að gefa hv. frummælanda orðið og eins hefur verið beint spurningum til hæstv. ráðherra. En við höfum ekki langan tíma til þess og ég minni á það því að þessum umræðum verður að ljúka ekki síðar en kl. sjö. En ég tel þetta rétta framkvæmd, ef við mættum ljúka því með þessum hætti, að frummælandi fengi hér orðið og síðan svöruðu ráðherrar því sem beint hefði komið hér fram, en lítið meira yrði um umræður.