30.10.1985
Efri deild: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (244)

74. mál, þinglýsingalög

Landbrh. (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Frv. til l. um breyting á þinglýsingalögum, sem hér er lagt fram, má teljast fylgifrumvarp með frv. til umferðarlaga sem hér hefur verið til umræðu. Frv. varðar breyttar reglur um þinglýsingu skjala er varða skráðar bifreiðar með hliðsjón af breyttum skráningarreglum. Frv. sama efnis lá og fyrir síðasta Alþingi í tengslum við frv. til umferðarlaga en þau frv. hlutu ei afgreiðslu. Ég tel eigi ástæðu til að endurtaka grg. sem áður hefur verið flutt hér á þinginu fyrir efni þessa frv. en leyfi mér að vísa til fyrri framsögu og prentaðra athugasemda með frv.

Hæstv. forseti. Ég legg til að frv. þessu verði að þessari umræðu lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.