05.03.1986
Efri deild: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2982 í B-deild Alþingistíðinda. (2495)

302. mál, veð

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér breytingu á veðlögum nr. 18/1887 og er ætlað að taka af allan vafa um að eldisfiskur geti talist afli eða afurð fyrir slátrun, sbr. 4. málsgr. 4. gr. laganna, og geti þannig verið hæft andlag veðsetningar. Í frv. er jafnframt gert ráð fyrir að framleiðendum eldisfisks verði heimilt að veðsetja fiskinn til lengri tíma en eins árs í senn.

Frv. þetta er flutt nú þar sem ríkisstj. hefur borist áfangaskýrsla nefndar um fiskeldismál, en þar eru m.a. gerðar tillögur um tilhögun á rekstrar- og afurðalánum til fiskeldisfyrirtækja. Eins og kunnugt er var þessi nefnd skipuð af forsrh. 1. ágúst 1985 og er henni ætlað að vera ríkisstj. til ráðuneytis um fiskeldismál.

Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að ein helsta fyrirstaða þess að unnt sé að veita afurðalán til fiskeldisfyrirtækja sé skortur á veðum. Skiptir þar mestu máli að skv. gildandi veðlögum er álitamál hvort eldisfiskur er hæft andlag veðsetningar fyrir slátrun. Fiskeldisstarfsemi er nefnilega þannig háttað að oft er mun meira verðmæti fólgið í þeim fiski, sem verið er að ala, en í fastafjármunum fiskeldisstöðvanna sjálfra. Þetta hlutfall er þó breytanlegt en þess finnast dæmi að fiskur, sem alinn er í eldiskerum í sjó, nái allt að tíföldu verðmæti kvíanna sjálfra.

Skv. veðlögum er það meginregla að mönnum sé óheimilt „að setja að sjálfsvörsluveði safn af munum, sem eru samkynja eða ætlaðir til samkynja notkunar, og einkenndir eru einu almennu nafni“. Á hinn bóginn hefur löggjafinn veitt ýmsar undanþágur frá þessari meginreglu, eins og nánar er rakið í athugasemdum með þessu frv.

Sú undanþága, sem lagt er til að lögleidd verði í þessu frv., er hliðstæð þeim undanþágum sem löggjafinn hefur þegar heimilað og sýnist eldisfiskur engan veginn vera ótryggara andlag sjálfsvörsluveðsetningar en þær afurðir sem núgildandi undanþágur taka til. Jafnframt er nauðsynlegt að heimilt sé að veðsetja eldisfisk til lengri tíma en eins árs í senn þar sem fiskurinn er alinn lengur en eitt ár í kerum eða kvíum. Má í þessu sambandi minna á að tryggingafélög bjóða nú tryggingar á lifandi fiski í eldisstöðvum.

Virðulegi forseti. Ég tel ekki nauðsyn bera til að hafa fleiri orð um frv. sem hér liggur fyrir. Það skal aðeins undirstrikað að hér er um breytingu að ræða sem er til þess fallin að ryðja úr vegi hindrun sem getur staðið rekstri fiskeldisstöðva hér á landi fyrir þrifum.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umræðu og hv. fjh.- og viðskn.