10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3021 í B-deild Alþingistíðinda. (2559)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Það hefur verið gefið í skyn af hálfu hv. meiri hl. félmn. að mál þetta verði tekið til athugunar af nefndinni á milli 2. og 3. umr. Þá kunna að verða gerðar á því breytingar af hálfu meiri hl. nefndar sem gætu orðið til bóta. Í trausti þess að svo fari sé ég ekki ástæðu til að leggja stein í götu frv. við þessa umræðu og greiði ekki atkvæði.